Starfsmannafélag SM
Klukkan
Dagsetning
29. janúar 2012
RSS tengill
23.11.2011 13:13:52 / smstarfsmenn

Árshátíð!

Nú líður að hinni árlegu árshátíð og og þar sem ég er einn af skemmtinefndinni þá veit ég að það hafa staðið yfir stífar æfingar og verður þetta sennilega ein besta árshátíð sem haldin hefur verið hjá okkar ástsæla starfsmannafélagi.  Það verður skotið á menn alveg vinstri hægri og hef ég eftir mjög svo áræðanlegum heimildum að þeir Sverrir og Númi þori ekki að mæta af ótta við föst skot og eru þeir búnir að pannta sér ferð á fótboltaleik á Englandi. Ég hef heyrt af fleirum sem ekki þora að koma af ótta við að gera sig að fífli en "kommon" það er hluti af þessu. Það er bara þannig að þeir sem fá á sig skot eru greinilega búnir að gera eitthvað á árinu, það er ekkert að óttast þetta er bara til gamans gert. Á dögunum var farin heljarinnar ferð til Reykjavíkur og veit ég að það voru myndavélar með í för og það væri rosalega gaman að fá einhverjar myndir úr þeirri ferð inn á síðuna.( Þó ekki væri nema bara til að gera þá sem ekki nenntu með afbrýðisama)                                                                                            

Hvað um það, ég hef það ekki fleira að sinni

Kv Stebbi


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2011 12:21:21 / smstarfsmenn

Árshátíðarhelgin!!!

Já, eruði ekki í gríninu með þetta. Hafa allir ritarar síðunnar legið í dvala eða var það bara ég? En hvað um það " ég ætlaði bara að láta vita að ég er vaknaður :o" árshátíðarhelgin hefur verið ákveðin og varð að þessu sinni 26.-27. nóv fyrir valinu. Árshátíðin verður með jólahlaðborðssniði í ár og verður haldin á Countryhotel Sveinbjarnagerði með tilheyrandi kræsingum;). Boðið verður upp á gistingu og þá jólabrunsh áður en farið verður heim:haha::d. Að mér skillst verður dagurinn tekin snemma á laugardeginum með einhverjum óvissuatriðum og rútuferð og verður þá endað með rútuna í Sveinbjarnagerði. Ég heyrði því fleygt að Hólmar væri að undirbúa kæruleysismjöð:klikk::klikk: eins og var boðið uppá í fyrra og er fólk beðið að fara varlega í það (ef að verður):klikk::^). Varla þarf að taka fram að góða skapið er nauðsinlegt að hafa með í svona ferð og opinn hug að sjálfsögðu.:haha::haha:

Hef það ekki meira að sinni

Kv. Stebbi 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2011 12:08:05 / smstarfsmenn

Aðalfundur / þorrablót...................

Jæja góðir hálsar.
Þá er nú blessaður aðalfundurinn að baki og var hann ekki eins blóðugur og títtnefndur fótboltafundur þó að stjórnin (eins ágæt og hún nú var) væri hrakin frá völdum. En þeir Númi og Sverrir semsagt sögðu sig úr stjórninni og Jói (húðun) og Haddi (skrifstofa) koma inn í staðinn. "Haddi eftir 2ja ára baráttu við að komast í stjórnina og var að verða úrkula vonar" Við náttúrulega þökkum fráfarandi stjórnarmönnum fyrir vel unnin störf um leið og við bjóðum nýju mennina velkomna. Hólmar situr sem fastast í stjórninni og þökkum við kærlega fyrir það. Varamenn gáfu kost á sér áfram en það eru þeir Ragnar (verslun) og Róbert (smiðju) sem og gjaldkeri (Rannveig) og endurskoðandi reikninga (Stebbi).       Það fyrsta sem nýja stjórnin sagði þegar hún tók við var að hér eftir væri ekkert áfengi lengur á boðstólnum hjá félaginu " Haddi var reyndar fullur þegar hann sagði það og var púaður niður " Síðan kom matur og þvílík dásemd allt rosalega gott en þó vantaði SÚRSTRÖMMINGINN sem Sverrir kom með frá Svíþjóð ( hann sagðist hafa gleymt honum heima en ég talaði við Helgu og tjáði hún mér að hann væri bara búinn með hann.)
Nú herlegheitunum voru svo skolað niður með bjór og brennsa "auðvitað var líka boðið upp á gos" og var þá tekið til við kraftakeppni þar sem Magga fór ein með einum 10 körlum inní húðun að berjast við "keilukúluna" hans Helga en um er að ræða 77,5 kg kúlu og áttu menn að lyfta kúlunni af gólfi upp á borð og vafðist það fyrir ansi mörgum. Þó kom á óvart að enginn skyldi brjóta tær í baráttunni við kúluna. Ekki fara sögur af því hvernig gekk að koma kúlunni uppá borð en þó gátu einhverjir komið henni uppá. 
En allavega fór þetta friðsamlega fram og enginn slasaðist.                                                  P.S. Það eru væntanlegar einhverjar myndir inn á síðuna frá fundinum

Kveð að sinni Stebbi
  

» 10 hafa sagt sína skoðun

08.02.2011 10:38:39 / smstarfsmenn

Aðalfundur / þorrablót

Góðan og blessaðan daginn.

Haldiði að ég hafi ekki verið að fá dagsetningu á aðalfundinum og þorrablótinu.
Herlegheitin verða haldin þann 11. febrúar á millilofti verslunar og hefst fundurinn stundvíslega kl. 19:00. Þarna verður farið yfir farin veg síðasta árs og lögð drög að næsta starfsári, reikningar skoðaðir oþh. Síðan verður væntanlega kosið í nýja stjórn (þó þessi hafi staðið sig mjög vel) og þeir sem ekki mæta á aðalfundinn eiga á hættu að verða kosnir í stjórn "þannig að ég hvet alla til að mæta". Síðan þegar fundi er lokið verður tekið hraustlega á því í þorramat og að sjálfsögðu áður nefndum SÚRSTRÖMMING sem Sverrir kom með frá Svíþjóð.

Kveð að sinni Stebbi

» 10 hafa sagt sína skoðun

28.01.2011 13:36:37 / smstarfsmenn

Aðalfundur / Þorrablót ??????

Sælt veri fólkið.
Ég var að heyra það að hrikalegt þorrablót væri í uppsiglingu í kjölfar aðalfundar okkar ástsæla félags :haha::haha:( þó ætla ég að vona að fundurinn verði ekki eins blóðugur og fundur knattspyrnudeildarinnar ):evil::^).
 Dagsetning hefur þó ekki verið ákveðin "mér vitandi" á þessum herlegheitum en ég sá til stjórnarmanna  skoða verðlagningu drykkjarfanga í verslun einni í Hólabrautinni þannig að það hlýtur að fara að koma að þessu. Sverrir fór meira að segja til Svíþjóðar að smakka þarlenda þjóðarrétti og kom heim með fulla tösku af súrströmming sem á að vera aðalréttur þorrablótsins. " Hann þurfti meira að segja að borga yfirvigt ":cry:
En hvað um það, þetta verður allt skráð þegar ég fæ ákveðna dagsetningu á þessu öllu.

Kveð að sinni Stebbi

» 8 hafa sagt sína skoðun

29.12.2010 09:09:57 / smstarfsmenn

Ársþing knattspyrnudeildar

Sælt veri fólkið.
Ég hleraði það eftir mikið handalögmála ársþing knattspyrnudeildar norðurhluta
SM FERRO ZINK, að knattspyrnustjórarnir hefðu verið látnir taka pokann sinn með skömm, glóðaraugum og sprungnum vörum.
Þeir eru enn smá haltir og skakkir "eftir fundinn" en að öðru leiti grónir sára sinna. Leit er hafin að nýjum stjórum og hefur heyrst að fyrrum stjóri Liverpool "hann Rafael Benítez" hafi látið reka sig á Spáni til að taka við liðinu okkar. (Hef það þó ekki eftir áræðanlegum heimildum.) Einnig hefur nafn Guðjóns Þórðarsonar heyrst og þá aðallega ef hann gefst upp á vestfjörðum. (Sem er reyndar mjög líklegt) En hvað um það þjálfara málin leysast ekki með einhverju bulli hér þannig að stjórn knattspyrnudeildarinnar verður að ráða fram úr þessu sjálf.

Hef það ekki fleira að sinni
Kv Stebbi (búllmæster)

» 11 hafa sagt sína skoðun

24.11.2010 08:08:14 / smstarfsmenn

SM CUP, SM CUP.

Jæja, þá er nú blessaður fótboltinn að baki og fór hann illa fyrir okkur norðan menn.
Það er skemmst frá því að segja að sunnan menn unnu leikinn 4 : 3 þar sem sunnanmenn eru sakaðir um svindl og mútur til dómara. Þeir tóku sig til að mynda til og buðu þremur ungum atvinnumönnum úr F.H. í heimsókn og kölluðu það starfskynningu til að reyna að hafa þá löglega í mótinu og skyldu "gömlu hlunkana" eftir í sárum heima.
Höfðu svo föngulega snót "með bjór" á áhorfenda pöllunum sem var alltaf að ota bjórnum að dómaranum og trufla hann við störf sín þannig að hann sá til dæmis ekki þegar Eiður var tekinn með sniðglímu á lofti og skellt í teig sunnanmanna og lá óvígur eftir.
En þetta er nú bara leikur. (er það ekki annars) Ef þetta er ekki leikur á milli norðurs og suðurs heldur hver getur fengið betri betri leikmenn til að vinna leikinn þá væri gott að vita það þannig að við gætum verið samstíga sunnanmönnum í leikmanna öflun.
En allavega, til hamingju með tapið, við stóðum okkur helvíti vel þrátt fyrir að vera bara með löglega vinnustaða hlunka og Óla bróðir.

Kv. Stebbi

» 7 hafa sagt sína skoðun

16.11.2010 15:51:39 / smstarfsmenn

Fótbolti,fótbolti,fótbolti.

Já, komiði sæl og blessuð. Það er bara brjálað að gera í skrifunum.
Haldiði að það sé ekki bara komið að hinu árlega fótbolta móti milli NORÐURS og suðurs.
Leikurinn verður að þessu sinni haldinn í Boganum á Akureyri og verðum við að passa að sunnanmenn verði alls ekki sunnanmegin í húsinu (og þar af leiðandi á heimavelli eins og fyrir sunnan síðast). En eins og ég sagði verður leikurinn í Boganum á Akureyri kl. 19:40 laugardaginn 20. nóvember og verður boðið upp á POTT OG GUFU í Friðriksstofu eftir leikinn. Pizza verður á boðstólnum fyrir þá sem mæta (hvort sem þeir spila eða ekki) og síðan verður villt partý í Árstígnum á eftir þar sem Hólmar ætlar að bjóða upp á hinn stórhættulega kæruleysis mjöð eða nei annars "hann kláraðist víst í óvissuferðinni fyrir árshátíðina hjá okkur" SORRY! sunnanmenn þið misstuð af miklu. En allavega, við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að mæta og öskra sína menn áfram.
Áfram FERRO ZINK svo er bara spurning hvort menn halda með sunnan eða norðan mönnum. Ég hef heyrt að norðan menn ætli sér stóra hluti og hirða bikarinn, hvort það sé raunhæf markmið eða ekki læt ég ósagt en allavega áfram FERRO ZINK.

Kv Stebbi
ps. gert með leifi stjórnar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2010 10:41:48 / smstarfsmenn

Árshátíðar og óvissu myndir 2010 komnar inn.

Jæja, þá eru fyrstu myndir úr óvissu/árshátíðarferð okkar komnar inn og ef þið liggið á fleiri myndum sem þið viljið koma inn á síðuna okkar þá er bara að hafa samband.
Það er líka verið að vinna í því að koma inn myndböndunum (massatröll og spurningamyndbandinu) en spurning hvernig það gengur. Hef talað við kerfisfræðing sem í fljótu bragði sá ekki hvernig það væri gert, en það er samt verið að vinna í þessu.
En allavega ég ætlaði bara að láta vita af myndunum.

Kv Stebbi

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2010 08:26:16 / smstarfsmenn

Árshátíð 2010 afstaðin.

Já, sæll erum við í ruglinu eða hvað?
Þetta var náttúrulega bara geeeeeeeðveikt gaman (allavega það sem ég man eftir, eða þannig).
Óvissuferðin var rosalega skemmtileg, það sem hægt er að gera innanbæjar með litlum tilkostnaði er alveg ótrúlegt.
Fjörið á slökkvistöðinni var rosalegt og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir það. Eins var mjög gaman að skoða flugsafnið og fá Gest safnstjóra til að labba með okkur og segja aðeins frá gripunum sem voru til sýnist var bara ómetanlegt. Og mótorhjólasafnið "maður minn" þetta er náttúrulega bara snilld. Maturinn sem við fengum á mótorhjólasafninu var mjög góður (takk fyrir mig). Víkingbrugg stendur alltaf fyrir sínu og var jólabjórinn afar góður (allavega rann hann mjög vel niður í flesta). Dekrið sem konurnar fengu svo í framhaldinu í Abaco var víst algjör sæla og vilja þær "allavega sem ég hef talað við" koma sérstökum þökkum til stjórnarinnar fyrir tiltækið kiss,kiss og knús.:haha::haha:
Keilan sem við karlarnir fórum svo í ,meðan konurnar fengu dekrið, stóð vel fyrir sínu  (þótt skorið hafi verið í lægra lagi).
Svo kemur nú að ÁRSHÁTÍÐINNI sjálfri en hún var haldin að þessu sinni á Greifanum í veislusal uppi á annari hæð (frábær staður).
 Maturinn þar "ó mæ god" hann var rooosalega góður (namm,namm). Skemmti atriðin voru frábær (það er verið að vinna í því að koma atriðinu frá Jóa og Jörgen inn á síðuna) og svo væri frábært að fá einhverjar myndir inn úr óvissuferðinni (ég sá helling af myndavélum) og frá árshátíðinni líka.

Kæra stjórn, Sverrir, Númi og Hólmar takk kærlega fyrir frábæra skemmtun á laugardaginn.

Kveðja Stebbi smiðjukall (hvar er kúturinn?)

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.11.2010 10:34:03 / smstarfsmenn

Árshátíð 2010

Komiði sæl og blessuð!
Það er bara ekkert öðruvísi en að okkar ástsæla starfsmannafélag ætlar að bjóða til óvissuferðar, árshátíðar og alles. Herlegheitin hefjast stundvíslega kl. 11:00 að staðartíma laugardaginn 13. nóvember "við Fákasport" en þá rennir rúta af stað með starfsmenn og maka út í óvissuna og verður komið til baka um kl. 17:00. Mér finnst á stjórnarmönnum að það sé afar nauðsinlegt að hafa með sér sundföt og hafa ýmsar uppástungur um það "afhverju" skotið upp kollinum, ein er sú að það eigi að senda allt liðið í spray tan en ég veit ekki hvort það sé rétt. En allavega hafa menn tíma til að græja sig eftir óvissuferðina því það er svo mæting í veislusal Greifanns 2. hæð kl 20:00 og hef ég eftir mjög áræðanlegum heimildum að veislustjóri kvöldsins sé engin önnur en hin síunga, þjóðþekkta og kynþokkafulla
Rannveig Jónsdóttir.:haha::haha:

Matseðill kvöldsins er eftirfarandi:

Forréttur:

Humarsúpa Greifanns með rjómatopp, nýbökuðu brauði og tapenade.

Aðalréttur:

Grillað lambafillet með bakaðri kartöflu, steiktu grænmeti og rauðvínssósu.

Eftirréttur:

Holtsels ís með jarðarberjum og rjóma, ís lagaður hér í héraði, þéttur ís með miklum rjóma.

Svo er bara að muna eftir góða skapinu og eiga skemmtilega kvöldstund saman.

P.S. Ég hef heyrt að það eigi ekki að fara á sjóstöng núna þar sem það lagðist eitthvað illa í einhverja í fyrra en í staðin eigi að fara í sjósund og er þá komin útskýring á þessu með sundfötin. Sel það þó ekki dýrara en ég stal því.

Kveð í bili "löngu búinn að tína blessuðum kútnum" Stebbi stuð 

» 10 hafa sagt sína skoðun

21.09.2010 08:21:42 / smstarfsmenn

Svar við kommenti

Halló! "þú sem ekki þorir að skrifa undir nafni" (óþolandi) nei smá djók.
Upplýsingar um það hvernig fyrri og seinni umferð fór í keilunni.

Einstaklings keppni fyrri umferð.
1. sæti Jói húðun með 155 stig
2. sæti Gulli Sverris með 136 stig
3. sæti Haddi með 126 stig

Einstaklings keppni seinni umferð.
1. sæti Gulli Sverris með 145 stig
2. sæti Raggi með 144 stig
3. sæti Hilmar með 141 stig

Liða keppni fyrri umferð
1. sæti Húðun með 108 stig meðalskor
2. sæti Bílstjóradeild með 101 stig meðalskor
3. sæti Skrifstofa með 99,6 stig meðalskor
4. sæti Lager B með 91,5 stig meðalskor
5. sæti Smiðja með 89,428571 stig meðalskor
6. sæti Verslun með 88,5 stig meðalskor

Liða keppni seinni umferð
1. sæti Skrifstofa með 101,66666 meðalskor
2. sæti Verslun með 96 stig meðalskor
3. sæti Bílstjóradeild með 95,5 stig meðalskor
4. sæti Smiðja með 95,142857 stig meðalskor
5. sæti Húðun með 92,666666 stig meðalskor
6. sæti Lager B með 90,75 stig meðalskor

Vona að þetta uppfylli allar kröfur um úrslitaþjónustu keiluskors deilda og einstaklinga í umræddri keilu keppni norðurdeildar FERRO ZINK SANDBLÁSTURS OG MÁLMHÚÐUNAR STARFSMANNAFÉLAGS. Nú ef ekki þá er bara að kommenta og við reynum þá að redda því. 

ps. Ég skal ekkert vera rosalega reiður þó að þið ÞORIÐ EKKI að skrifa undir nafni

Kv Stebbi  

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2010 14:09:21 / smstarfsmenn

Meira um keiluferð

Sæl öll aftur.
Grobbréttarhafinn í keilu þetta árið (Gulli Sverris) vildi endilega fá að vita "af því að þetta var auglýst sem liðakeppni" hvaða lið sigraði þetta árið. (Ég vildi bara ekki segja frá því hanns vegna, út af grobbréttinum þið skiljið)
En sökum þess að grobbarinn vill vita þetta þá eru úrslitin eftirfarandi.

1. sæti með 200,66666 stig í meðalskor er HÚÐUN
2. sæti með 196,5 stig í meðalskor er BÍLSTJÓRADEILDIN
3. sæti með 184,83333 stig í meðalskor er SKRIFSTOFAN
4. sæti með 184,57142 stig í meðalskor er SMIÐJAN
5. sæti með 184,5 stig í meðalskor er VERSLUN
6. sæti með 182,25 stig í meðalskor er LAGER B

Vona að þetta sé ekki voðalega sárt Gulli minn en miðað við liðakeppni færist GROBBRÉTTURINN yfir til HÚÐUNAR og það án þess að Númi sé með.

Hef það ekki meira að sinni 
Kv Stebbi stuð
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2010 08:37:32 / smstarfsmenn

KEILUKEPPNI NORÐURDEILDAR F.Z.!!!!!!!!!!

Góðan dag mín kæru.
Keilukeppni norðurdeildar FERRO-ZINK SANDBLÁSTURS OG MÁLMHÚÐUNAR fór fram eins og áður hefur komið fram föstudagskvöldið 17. sept. og höfðu menn á orði að þetta hafi verið rooooooooosalega gaman.:haha::haha:
Nú 29 manns voru skráðir til keppni en einungis mættu 28 þar sem einn var veikur (sennilega í stresskasti) og æstust leikar heldur betur þegar leið á kvöldið. Til dæmis á smiðjustrákurinn Árni fall kvöldsins þar sem hann steig óvart inn á brautina í hita leiksins og lá óvígur eftir "menn héldu jafnvel að hann þyrfti að hætta keppni" en eins og aðrir smiðju strákar harkaði hann af sér og lauk keppni með stæl.  
En úrslitin eru eftirfarandi.
1. sæti með 281 stig Gunnlaugur Sverrisson
 2.-3. sæti með 257 stig Jóhann Guðmundur Eyþórsson og Ragnar Elías Ólafsson
4.-28. sæti með breytileg stig restin.

Verst er að ekki var myndavél að sjá í húsinu þannig að það eru engar sannanir til fyrir þessu góða gengi Gulla (það vantar fyrri leikinn á blað frá keiluhöllinni)

Nú í lokin vil ég misnota aðstöðu mína og óska öllum ÞÓRSURUM til hamingju með úrvaldsdeildar sætið í fótbolta. Við KA menn reynum að komast upp að ári.

Kv Stebbi í smiðjugenginu  

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2010 11:06:33 / smstarfsmenn

JEPPAFERÐ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Heilir og sælir kæru vinnufélagar.
Nú líður senn að hinni árlegu jeppaferð okkar frábæra félags (sem hefur reyndar fallið niður nokkur síðustu ár), og eru menn sveittir að leggja á ráðin um það hvert á að fara og hvað á að gera. Komið hefur upp sú hugmynd að fara dagsferð út í Flateyjardal og grilla saman í boði félagsins, það væri rosalega gaman að fá smá komment á þetta og eins ef menn hafa einhverjar aðrar hugmyndir að koma þeim þá á framfæri, annaðhvort hér sem komment eða þá við Hólmar háfjallageit.

Kv. Stebbi  

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 27111
Klukkan
Dagsetning
29. janúar 2012